FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: AÐ SEM (EKKI) MÁ


Internetið mitt er stappfullt af fólki sem er brjálað út í Cornell-háskóla fyrir að refsa stúdentum harðar fyrir að standa með Palestínu en að hópnauðga samnemanda. Fólki sem er brjálað út í nauðgarana fyrir það sem þeir gerðu og vinahópinn fyrir að stoppa þá ekki. Ég hef ekki undan að skoða hvern reiðilesturinn á fætur öðrum um ósanngirni þessa máls sem er ýmist sett í samhengi við þjóð sem kýs sér nauðgara fyrir forseta, hræsnina í „notallmen“ eða hannúðina sem felst í því að mannorð nauðgara skipti meira máli en mannorð brotaþola.
 

STUNDUM MÁ REIÐAST


Það er eðlilegt að fólk verði reitt og standi með hugrakka brotaþolanum sem nú hefur höfðað einkamál gegn skólanum, bræðrafélaginu og nauðgurnum sjö. Það er óskiljanlegt að vinahópur sammælist um að dópa niður konu og skiptast á að misþyrma henni. Það er fáránlegt að háskóli hafi einkalögreglu á sínum snærum og að sú lögregla telji ritgerðarskrif hæfilega refsingu fyrir hópnauðgun. 

EN BARA STUNDUM


Muniði þegar Aron Einar og Eggert Gunnþór voru kærðir fyrir hópnauðgun? Eða þegar Gylfi Sig var til rannsóknar fyrir brot gegn barni? En þegar Egill Einarsson var kærður fyrir nauðgun? -Sölvi Tryggvason? -Ari Edwald?

Enginn þessara manna hefur þurft að skrifa ritgerð til að bæta fyrir brot sín. Enginn þeirra hefur verið dæmdur. Sögurnar af meintum gjörðum þeirra eru samt ekkert mikið geðslegri en af gjörðum háskólagengisins í Ameríku. Þessir meintu gerendur létu lítið fyrir sér fara í smá stund, en síðan hefur lítið breyst. 

Það er varð engin reiðibylgja á internetinu þegar fótboltamennirnir komu til baka. Ekki þegar Egill varð að einhvers konar dægurstjörnu, Sölvi hélt áfram með podkastið sitt eða þegar Ari var kosinn í borgarstjórn. Það varð engin brjálaður út í þá, fólkið sem tók þá til baka eða fólkið sem ákvað að vinna með þeim. 

HVENÆR MÁ REIÐAST?


Ég hef áður skrifað um
samspil hannúðar og skrímslavæðingar. Ofbeldismenning þrífst nefnilega á mýtunni um að ofbeldi sé bara beitt af ómanneskjulegum skrímslum. Þess vegna er bara hægt að standa með brotaþolum sem verða fyrir ofbeldi af hálfu nafnlausra gerenda, útlendinga eða annarra ótengdra aðila.

Höfum þá í huga, að jafnvel þó við höfum nöfn og myndir af mönnunum, þá fellur drengjagengið í Cornell ljómandi vel að þessu. Það er ekkert mál að skrímslavæða einhverja gaura og nafnlaus skólayfirvöld sem ekkert okkar veit frekari deili á. 

HVAÐ ÞARF?


Við verðum að horfast í augu við að ofbeldi er ekki bara framið af skrímslum. Allir ofbeldismenn eru elskaðir af einhverjum, margir eru dáðir og virtir og eiga sér einhverjar góðar hliðar. Líka Cornell drengirnir og vanhæfu skólayfirvöldin þar og örugglega allir íslensku karlarnir sem ekki hafa sætt ábyrgð vegna meintra verknaða.

Ef við viljum útrýma ofbeldi verðum við að hætta að segja stelpum og konum að passa sig á öllu milli himins og jarðar. Þá verðum við að kenna strákum og körlum að þekkja og virða mörk og axla ábyrgð þegar þeir gera það ekki.

Þangað til verðum að trúa brotaþolum og díla við það að mennirnir sem við elskum og dáum geta verið gerendur. Kannski ekki allir – en Cornell er víða.

Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir • 18. september 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: RÉTT OG RANGT HJÁ BORGARSTJÓRA
Eftir soleytomasdottir • 11. september 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: BÍLSTJÓRI OG EIGINKONA
Eftir soleytomasdottir • 4. september 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: OFBELDISMAÐUR SEM KISTUBERI
ELDRI FÆRSLUR