FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: HVERSDAGSLEIKI KYNBUNDINS OFBELDIS
Ég hef verið óvenju geðvond í vikunni. Í staðinn fyrir að gleðjast, þá skil ég ekki af hverju fólk er allt í einu núna svona brjálað yfir einni hópnauðgun í Bandaríkjunum. Af hverju er fólk ekki alltaf brjálað? Kynbundið ofbeldi hefur jú verið hversdagslegur veruleiki kvenna um allan heim frá örófi alda.
AF HVERJU TILKYNNIR HÚN EKKI?
Í
jafnréttismælikvarða Landspítalans kemur fram að í könnunum sögðust 2-3% starfsfólks hafa orðið fyrir kynferðislegri eða kynbundinni áreitni af hálfu samstarfsfólks á vinnustaðnum á árunum 2021-2023. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að þetta séu a.m.k. 170 einstaklingar á ári.
Á sama tíma hafa 12 mál verið í vinnslu hjá þar til gerðum úrræðum á Landspítalanum. Innan við 10% málanna. Einhverra hluta vegna eru málin ekki tilkynnt og/eða úr þeim unnið. Hér skal tekið fram að Landspítalinn er ekkert frábrugðinn öðrum vinnustöðum. Sambærilegt misræmi er að finna alls staðar þar sem þetta er mælt.
AF HVERJU KÆRIR HÚN EKKI?
Undanfarin þrjú ár hafa 43 manneskjur leitað til Stígamóta vegna hópnauðgana á Íslandi. Fáar þeirra hafa ratað á borð lögreglu, enn færri farið til ákærusviðs og í fljótu bragði sýnist mér aðeins ein hafa leitt til sakfellingar.
Árið 2015 þótti ekki ástæða til að úrskurða tvo menn í gæsluvarðhald þrátt fyrir rökstuddan grun um hópnauðgun. Það mál var svo fellt niður þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar (af Helga Magnúsi Gunnarssyni sem síðan þá hefur ítrekað afhjúpað sitt kvenfyrirlítandi og þolendaskammandi innræti). Málinu lauk þó ekki fyrr en meintir nauðgarar höfðu fengið miskabætur frá þremur einstaklingum og einum fjölmiðli vegna málsins.
Sama ár voru fimm menn sýknaðir af nauðgun á 16 ára stúlku þó verknaðurinn hafi verið tekinn upp á myndband sem var notað sem sönnunargagn fyrir dómi.
Þetta eru tvö gömul mál af mörgum sem ég gæti reifað hér, ótengd þeim 43 sem verið er að vinna úr hjá Stígamótum. Munum svo að alls ekki allir brotaþolar leita sér aðstoðar. Frá því að Cornell málið átti sér stað getum við því gert ráð fyrir að minnsta kosti 43 íslenskum Jane Doe. En líklega eru þær miklu, miklu fleiri.
AF ÞVÍ HÚN ER SVO VARKÁR
Það hafa ekki allar konur orðið fyrir hópnauðgun. En við höfum allar orðið fyrir einhvers konar ofbeldi af hálfu karla. Ofbeldi er svo hversdagslegt fyrirbæri að varkárniþjálfun er eðlilegur hluti af uppeldi stelpna. Það þykir bara eðlilegt að við séum allar búnar að læra að halda rétt á lyklum, velja leiðir, passa drykki, senda skilaboð og nota allar hinar varúðarrástafanirnar áður en við útskrifumst úr grunnskóla.
Í varkárniþjálfuninni lærum við líka tala ekki um ofbeldið sem við verðum fyrir nema í mjög öruggum aðstæðum og nafngreina gerendurna hvergi. Að lokum lærum við að skammast okkar fyrir að ná ekki að verjast öllu og á meðan „saklaus uns sekt er sönnuð“ glymur í hausnum á okkur dettur okkur ekki í hug að tilkynna málin til yfirvalda, enda hefur réttarkerfið enga burði til að sanna sekt í kynferðisbrotamálum.
HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Þó ég dáist að ungu konunum sem nú eru að segja Jane Doe sögurnar sínar, þá er það algerlega óþolandi að þær þurfi að rifja þetta upp enn eina ferðina.
Við vitum öll að kynbundið ofbeldi er algengt og hræðilegt og í flestum tilfellum framið af körlum gegn konum og jaðarsettu fólki. Það eru til sögur og tölfræði og upplýsingar og vídeó og spjöll og skrínsjott. Við þurfum ekkert meira af því. Við þurfum aftur á móti aðgerðir í samræmi við umfang og alvarleika málsins.
Ef kynbundið ofbeldi myndi bitna á einhverjum öðrum en konum og jaðarsettu fólki, þá væri Alþingi, sveitarstjórnir, ráðuneyti og stofnanir búin að henda öllu frá sér til að einbeita sér að því að uppræta þennan faraldur. Er ósanngjarnt að ætlast til þess að það gerist samt?
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



