FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: KYNÞOKKAFULLU SÓSÍALISTARNIR
Í Noregi hafa miklar deilur átt sér stað um femínískar áherslur að undanförnu. Upphafið má rekja til listakvenna sem ákváðu að gera dagatal í fjáröflunarskyni fyrir vinstriflokkana í Noregi. Á dagatalinu sem kallast “Sexý sósíalistar” sitja þær léttklæddar fyrir á kynþokkafullum myndum. Vinstriflokkarnir sem um ræðir hafa afþakkað stuðninginn, enda sé þetta óviðeigandi leið til tekjuöflunar fyrir femíníska flokka.
Í kjölfarið hafa umræður átt sér stað í öllum helstu fjölmiðlum þar sem fulltrúar norsku kvennahreyfingarinnar gera tilraun til að útskýra samhengið milli hlutgervingar, klámvæðingar, misréttis og ofbeldis en eru dæmdar sem drusluskammandi siðapostular fyrir vikið.
DEBATTEN Á NRK
Það var áhugavert að fylgjast með
umræðuþætti NRK í gærkvöldi. Þar var konum með ólík sjónarmið att saman af karlkyns þáttastjórnanda sem gerði enga tilraun til að fá útskýringar eða ná fram sameiginlegum flötum, heldur virtist hafa það eina markmið að búa til smellibrellur úr umræðunum. Þar kallaði hann fram fordæmingar á alla kanta um niðurlægjandi orðræðu kvennahreyfingarinnar og niðurlægjandi hegðun listakvennanna – um frelsi og forræðishyggju og hver megi ákveða hvað fyrir hver, um snyrtivörur, rakstur líkamshára og onlyfans. Allt var þetta rætt sem einstök og afmörkuð viðfangsefni án minnstu tilraunar til að setja hlutina í samhengi við valdakerfi samfélagsins.
DROTTNUNARAÐFERÐ
Í umræðum gærkvöldsins var augljóst að dagatalsgjörningurinn var ekki gerður til að styðja við vinstriflokkana þó það hafi verið yfirlýst markmið, heldur fyrst og fremst til að ögra þeirra femínísku stefnu. Þetta endurspeglaðist m.a. í máli fulltrúa listakvennanna þegar hún sagði orðrétt (mín þýðing): “Vandinn við vinstrið er hversu ótrúlega upptekin þau eru af því sem er siðferðilega og pólítískt hreint.”
Berit Ås myndi flokka dagatalið sem fjórðu drottnunaraðferðina, tvöfalda refsingu (hér má kynna sér drottnunaraðferðirnar hennar). Vinstriflokkarnir voru settir í þá stöðu að velja milli tveggja kosta sem báðir yrðu gagnrýndir. Annar kosturinn (sem þau völdu) var að hafna stuðningnum og gera tilraun til að útskýra skaðsemi þess að hagnast á hlutgervingu kvenlíkamans. Hinn var að þiggja stuðninginn og verða á sama tíma ótrúverðug í baráttu sinni gegn hlutgervingu kvenlíkamans í samfélaginu.
POPÚLISMI EINSTAKLINGSHYGGJUNNAR
Feðraveldið er flókið. Það byggir á valdakerfi þar sem saklaus hegðun, orð, vörur, áhugamál og áherslur tvinna saman þræði sem skapa forréttindi fyrir sum og hindranir fyrir önnur. Þessir þræðir eru svo lúmskir og tengingarnar svo flóknar að það er bæði tímafrekt og leiðinlegt að rekja þá alla. Því til viðbótar er fólk sem tengir saman útlitsdýrkun, hlutgervingu, klámvæðingu og ofbeldi, auðdæmt sem samsæriskenningasmiðir forræðishyggjunnar.
Feðraveldið nýtir sér popúlisma til að nærast á flækjunum. Það leikur sér að því að að láta femínista líta út eins og dæmandi, forpokaðar teprur gagnvart frjálsum og óhefluðum ungum konum sem ákveða stoltar og valdelfdar að sitja fyrir á dagatali í anda áttunda áratugarins. Feðraveldinu finnst ekkert andfemínískara en að "dæma konur fyrir þeirra frjálsa val" og finnst ekkert skrítið að konur vilji ekki láta kenna sig við femínisma lengur. Enda hundsar það bæði valdakerfið og hömlurnar sem það veldur.
FEMÍNISMI ER OG VERÐUR ÓVINSÆLL
Ég veit ekki hversu oft ég hef verið sökuð um að skaða femínískan málstað með mínum óvinsælu skoðunum. Ég er auðvitað löngu orðin ónæm fyrir því en þetta er aðferð sem virkar. Femínismi er í eðli sínu óþægilegur af því hann ögrar ríkjandi valdahlutfalli. Fólkið sem talar fyrir femínisma verður alltaf umdeilt og valið sem við höfum verður aldrei einfalt.
Það verður að hafa það. Við verðum bara að sætta okkur við sleggjudóma og stimpla, því við getum ekki bætt samfélagið á forsendum feðraveldisins. Eina leiðin er að standa keik með femínískum málstað. Sérstaklega þegar feðraveldinu finnst við vera að skaðleg.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



