INNGILDANDI HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
NÁMSKEIÐ FYRIR HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Heilbrigðiskerfið byggir á flóknu valdakerfi, þar sem kyn, stétt, menntun, uppruni og tungumálakunnátta hafa umtalsverð áhrif á tækifæri og stöðu starfsfólks og samskipti við sjúklinga og aðstandendur.
Í námskeiðinu verður fjallað um ástæður þessa, um áhrif beinnar og óbeinnar mismununar, hópamyndana og valdabaráttu og leiðir sem hægt er að nýta til að stuðla að inngildandi framkomu, vinnulagi og menningu á vinnustaðnum.
Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum leikjum og hópavinnu þar sem þátttakendur fá þjálfun í að greina eigin hlutdrægni og annarra, bregðast við og fyrirbyggja mismunun í samskiptum og vinnulagi.
Kennari á námskeiðinu er Sóley Tómasdóttir, kynja- og fjölbreytileikafræðingur.
Hvar: Hótel Búðir
Hvenær:
3.-5. mars
Verð í einbýli:
kr.
195.000,-
Verð í tvíbýli: kr. 160.000,-
Innifalið í verði er gisting í tvær nætur og námskeið. Hægt er að sækja um styrk til starfsþróunarseturs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir upphæðinni.
Skráningarfrestur er til 1. desember 2026.
Staðfestingargjald er kr. 42.000 fyrir tvíbýli og kr. 75.000 fyrir einbýli (greiðist fyrir 5. desember, fæst ekki endurgreitt).
Þátttakendur greiða sjálf/ir/ar fyrir hádegis- og kvöldverð á staðnum, alls kr. 23.800,-
UMMÆLI UM NÁMSKEIÐ JUST CONSULTING
“Frábært námskeið sem lét mig horfast í augu við óþægilega hluti. Ég get breytt mjög mörgu.”
“Ótrúlega margir áhugaverðir punktar sem ég get notað í daglegum störfum hér eftir.”
“Það er alltaf svo hvetjandi að hlusta á Sóleyju. Hún kynnir fólk alltaf fyrir nýjum mikilvægum vinklum.”
“Það þurfa að vera svona námskeið reglulega á öllum vinnustöðum.”