Blog Layout

FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


YFIRTAKA ORÐRÆÐUNNAR (E. HIJACKING)

Undanfarin ár hef ég unnið við að stúdera, þróa og aðstoða fólk við að velja leiðir til að stuðla að jafnrétti og inngildingu. Ég byggi störf mín að miklu leyti á rannsóknum fræðikvenna sem hafa greint kerfislægar hindranir samfélagsins, sýnt fram á hvernig þeim er beitt, hvaða áhrif þær hafa og hvernig hægt er að sporna gegn þeim. Þetta eru konurnar sem hafa kennt okkur hugtök á borð við hrútskýringar, gaslýsingu og pick-me-girls, konurnar sem gera okkur kleift að benda á og mótmæla útilokandi framkomu og hegðun.
 

MISBEITING


Mörg þessara hugtaka eru orðin ágætlega þekkt, en mig langar að fjalla um hugtakið „hijacking“, þegar hugtök eða orðræða eru yfirtekin af valdafólki sem notar þau til að styrkja stöðu sína. 
Hér má lesa um hvernig Donald Trump og Victor Orbán hafa yfirtekið fórnarlambshugtakið og gera þar með lítið úr þjáningum raunverulegra fórnarlamba gegnum tíðina. Sjálf hef ég skrifað um tilraunir Vinstri grænna til að skilgreina gagnrýni á sig sem hatursorðræðu. Hvort tveggja fellur undir fyrrnefnda yfirtöku orðræðunnar. Auk misbeitingarinnar á hugtakinu sjálfu, felst jafnframt í þessu misbeiting á skilgreiningarvaldi og lítilsvirðing gagnvart raunverulegum hindrunum, upplifunum og þjáningum jaðarhópa.
 

DOWN GIRL


Í gær 
birtist grein eftir Jón Ólafsson á Vísi þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að kvenhatur, skv. kenningum Kate Manne, sé ástæða slaks gengis Katrínar Jakobsdóttur í framboði til forseta.

Það er hárrétt hjá Jóni, að samfélagsleg kvenfyrirlitning er risastórt vandamál á Íslandi. Hún snýst ekki um einbeittan brotavilja einstaklinga, heldur kerfislægt fyrirbæri sem hefur mótandi áhrif á okkur öll og hamlandi áhrif á jaðarsett fólk. Það er líka hárrétt hjá Jóni að hún gerir konum sem fara út fyrir ákveðið hegðunarmynstur erfitt fyrir að ná árangri og njóta sannmælis. En að þetta sé ástæða dræmra undirtekta við framboði Katrínar Jakobsdóttur er ekkert annað en yfirtaka.

Samfélagsleg kvenfyrirlitning er nefnilega ein af ástæðunum fyrir farsælum stjórnmálaferli Katrínar Jakobsdóttur. Hennar staða verður miklu frekar greind út frá rannsóknum á konum sem hafa náð langt með því að spila eftir leikreglum valdakerfisins og fara sjaldan eða aldrei út fyrir ásættanlegt hegðunarmynstur. Konunum sem aðlagast valdinu og gangast jafnvel upp í karllægri hegðun til að öðlast samþykki innan kerfis. Jón ætti að kíkja á þær.
 

MÁLEFNALEG GAGNRÝNI


Ég vil ekki Katrínu Jakobsdóttur sem forseta. Ekki af því að hún er kona, heldur af því að hún hefur brugðist konum. Aðrir frambjóðendur eru kannski engir englar, en þau hafa ekki leitt ríkisstjórn með spilltu sérhagsmunafólki í stað þess að vinna að þeim hugsjónum og stefnumálum sem þau voru kosin til að sinna.

Bestu kveðjur,

Sóley

Þessi hugleiðing birtist sem grein á Vísi fyrr í dag.


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 15. nóvember 2024
 HUGTAK VIKUNNAR: FORRÉTTINDAFIRRING
Eftir soleytomasdottir 8. nóvember 2024
HUGLEIÐING VIKUNNAR: HITT FÓLKIÐ
Eftir soleytomasdottir 1. nóvember 2024
HUGLEIÐING VIKUNNAR: MANNRÉTTINDABROT SEM STEFNUMÁL?
ELDRI FÆRSLUR
Share by: