FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: BÍLSTJÓRI OG EIGINKONA

Ég komst að því síðasta vor að íslensk ökuskírteini gilda bara í 185 daga í Evrópusambandinu. Eftir að hafa ekið réttindalaus í næstum níu ár, rauk ég niður á bæjarskrifstofu og óskaði eftir hollensku skírteini. Þetta gekk tiltölulega hratt fyrir sig, ég man ekki nákvæmlega hvernig, en viku síðar var ég komin með gilt hollenskt ökuskírteini sem ég hef ekkert spáð í síðan.


Í síðustu viku var mér af einhverjum ástæðum litið á ökuskíteinið og sá þá að fyrir aftan eftirnafnið mitt stendur e/v Schalk. Eiginkona Schalk. Einhvers staðar og af einhverjum ástæðum var sumsé ákveðið að á ökuskírteininu þyrfti að tilgreina hjúskaparstöðu mína og nafn hins heppna.

 

HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM?


Hjúskaparstaða Aarts kemur ekki fram á hans ökuskírteini, né heldur mitt nafn. Opinberar reglur kveða á um að það sé hægt að óska eftir því að eftirnafn maka komi fram, en ég hef hvorki fundið hvar eða hvernig sú ósk ætti að vera borin upp. Internetið á engin svör og á bæjarskrifstofunni sögðust þau ekki geta fundið neitt eyðublað frá mér. Það væri bara hakað í „e/v“ í kerfinu hjá þeim.

 

HVAÐ GERÐI ÉG RANGT?


Rúmu ári seinna er snúið að fara fram á leiðréttingu þar sem engin sönnunargögn virðast vera til. Ég hefði auðvitað átt að skoða ökuskírteinið þegar ég fékk það afhent, taka eftir þessu og láta laga. En ég gerði það ekki. Kerfisfólkið á skrifstofunni sýndi mér hvorki skilning né samúð þegar ég leitaði til þeirra og hafði engan áhuga á þeirri staðreynd að ég kem úr menningu þar konur kenna sig ekki við eiginmenn sína.


Getur samt verið að ég hafi óvart hakað í eitthvað eða svarað játandi? Ég er jú útlendingur og á það til að misskilja. Kannski er þetta mér að kenna eftir allt saman?

 

EKKI SÚ EINA


Þó internetið geti ekki sagt mér hvar ég óski eftir að kenna mig við manninn minn á ökuskírteini, þá er þar að finna umræðuþræði kvenna með sömu reynslu og ég. Ég er ekki sú eina. Það eru fleiri konur í Hollandi með nafn eiginmanna sinna á ökuskírteinu sínu án þess að kannast við að hafa óskað eftir því. Ekki bara útlendingar sem eru að misskilja, heldur konur sem hafa vísvitandi brotið þá hefð að taka upp nafn eignmanns síns við giftingu.

 

HVAÐ ER TIL RÁÐA?


Ég get óskað eftir nýju ökuskírteini án e/v án mikils umstangs eða tilkostnaðar. Mér finnst það samt óþolandi. Öll sem þekkja eitthvað til mín vita að ég hefði aldrei óskað eftir þessu, hefði ekki hakað í reitinn e/v eða svarað spurningu um þetta mál játandi. Ég er 99,9% viss um að einhvers staðar í ferlinu hefur einhver manneskja hakað umhugsunarlaust í þetta af því það er það sem tíðkast fyrir konur. En ég get ekki sannað það.

 

HVAÐA MÁLI SKIPTIR ÞETTA?


Þetta er smámál. Skiptir mjög litlu máli og auðvitað mun ég bara enda á að sækja um nýtt ökuskírteini í stað þess að fara fram á leiðréttingu.


Ég vildi bara óska þess að smámálin væru ekki svona mörg. Að það væri ekkert samhengi milli þessa smámáls og allra hinna þar sem konur eru kenndar við karla (líka í íslenskri menningu sem kennir konur við feður í stað eiginmanna). Að þetta væri ekki enn eitt málið sem öllum finnst líklegra að sé mér að kenna en kerfisbundin skekkja. Að þetta væri ekki eitt af pússlunum sem stuðla að því að við borgum körlum hærri laun en konum, trúum þeim frekar en konum, finnst þeir merkilegri en konur og berum meiri virðingu fyrir þeim en konum. Margt smátt gerir nefnilega eitt stórt. Gleymum því ekki.


Bestu kveðjur,

Sóley

Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 4. september 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: OFBELDISMAÐUR SEM KISTUBERI
Eftir soleytomasdottir 28. ágúst 2026
MINNINGARORÐ: HARALDUR NOREGSKONUNGUR
Eftir soleytomasdottir 21. ágúst 2026
MEÐMÆLI VIKUNNAR: TEAM PØLSA Á RÚV!
ELDRI FÆRSLUR