FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: STJÓRNVALDSÁKVÖRÐUN UM BAKSLAG
Já, þetta er fjórða hugleiðingin á árinu um mannréttindamál í Reykjavík. Og ekki endilega sú síðasta. Í gær ákvað meirihluti borgarstjórnar nefnilega að leggja niður mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Það var fyrsta formlega stjórnvaldsákvörðun borgarstjórnar í þágu bakslagsins.
AÐDRAGANDINN
Ákvörðunin kemur ekki á óvart. Fyrir kosningar var ljóst að brestir voru komnir í þá þverpólitísku sátt sem hefur ríkt í 20 ár um mikilvægi mannréttindastarfs í Reykjavík. Miðflokkurinn keyrði óeininguna áfram með pólítískri andstöðu við allt mannréttindastarf og náði Sjálfstæðisflokknum með sér í lið. Á sama tíma komst Viðreisn einhvern veginn að þeirri undarlegu niðurstöðu að best væri að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu og uppræta kynbundinn launamun og ofbeldi án skrifstofu sem sér um utanumhald og eftirfylgni með verkefnunum. Framsókn hefur ekki haft opinbera skoðun í þessum málum, enda flokkur sem gerir oftar en ekki bara það sem aðrir flokkar vilja.
Þó Samfylkingin, Vinstrið og Sósíalistaflokkurinn kenni sig við jöfnuð, femínisma og mannréttindi og hafi ekki staðið að breytingunum í gær, þá flutu þau sofandi að feigðarósi. Enginn þessara flokka veitti harðlínuhægrinu alvöru viðspyrnu í kosningabaráttunni, þvert á móti veitti þögn þeirra bakslaginu brautargengi. Það hafði enginn flokkur kjark eða styrk til að svara fullum hálsi, hvað þá að setja framsæknar tillögur í málaflokknum á dagskrá. Því fór sem fór.
BREYTINGIN
Í gær var sumsé ákveðið að dreifa verkefnum mannréttindaskrifstofu vítt og breitt um kerfið. Smá á skóla- og frístundasvið, smá á velferðarsvið og smá verður í ólíkum einingum í ráðhúsinu. Þessi ákvörðun er í algerri andstöðu við það sem talið er árangursríkast í þessum málaflokki (eins og öðrum); að hafa skýra sýn, sterkt faglegt teymi og gott utanumhald.
Aflagning mannréttindaráðs er enn undarlegri. Verkefnum þess verður líka dreift í önnur ráð, sumt fer í borgarráð og eitthvað í velferðarráð en svo á hluti að fara í nýtt öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks. Það er alveg óskiljanlegt að kynjajafnrétti, hinsegin málefni, innflytjendamál, ofbeldi, öryggi, samtvinnun og inngilding verði bara hist og her um borgarkerfið, á meðan eitt fagráð eigi að fjalla um tvo afmarkaða jaðarhópa.
PÓLITÍKIN
Meirihlutinn segir ákvörðun gærdagsins vera setta fram í hagræðingarskyni. Það stenst þó enga skoðun. Fagráð verða fleiri en þau voru fyrir kosningar (þó mannréttindaráð og starfænt ráð hafi verið lögð af, bætast við leikskólaráð, menningarráð og öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks). Stöðugildum í mannréttindamálum fækkar mjög lítið. Það eina sem breytist er fókusinn.
Meirihlutinn stóð vissulega að fjöldauppsögnum í gær. Það var sárt sjá á eftir þrautreyndu teymi upplýsingafulltrúa sem hafa staðið vaktina með öllum meirihlutum gegnum súrt og sætt og aflagningu Græna plansins. Og það er frekar óhuggulegt að sjá hversu vel áherslur meirihlutans ríma við harðlínuhægrið, þar sem farið er gegn mannréttindum, faglegri miðlun upplýsinga og þróunarverkefnum í þágu umhverfismála.
Hugur minn er hjá fólkinu sem missti vinnuna í gær, fólkinu sem missti samstarfsfólk sitt í gær, fólkinu sem óttast um starfs- og afkomuöryggi sitt í kjölfarið og fólkinu í borginni sem mun líða fyrir þessar breyttu áherslur.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



