FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR Í BOÐI CHATGPT

Ég er búin að eiga í innri togstreitu undanfarna daga. Mig langar svo að skrifa geðvonskupistil um að enn eina ferðina sé kvenfrelsi ósýnilegt í stefnuskrám stjórnmálaflokkanna fyrir kosningar. En svo langar mig samt alls ekki að vera týpan sem er alltaf að kvarta yfir því sama. Ég held ég hafi tekið geðvonskukast á svipuðum tímapunkti í aðdraganda allra kosninga sem ég man eftir.
 
Þá gildir einu hvort ég var í framboði eða ekki. Þegar ég var í framboði og langaði mest að tala um hugmyndir að femínískum aðgerðum allan daginn mátti ég það ekki. Þá átti að breikka mig og tala um skipulag og orkumál og battavelli. Af því það var víst það sem kjósendur vildi heyra. Það voru alvöru stjórnmál.

Sú regla virðist enn vera við lýði. Ég er búin að renna í gegnum allar stefnuskrár sem hafa verið gefnar út í Reykjavík. Í einni þeirra sá ég eina setningu um að leiðrétta kjör kvennastétta. Í annarri var talað um forvarnir gegn ofbeldi, einelti og félagslegri einangrun í gegnum félagsmiðstsöðvar og frístundastarf. That‘s it.
 

TILLÖGUR CHAT-GPT

 
Í þessum geðvonskuköstum mínum hef ég skrifað langa reiðilestra og lista yfir það sem mér finnst að framboðin eigi að hafa á stefnuskránni sinni. Í ár ákvað ég að tempra geðvonskuna og nýta tæknina. Ég spurði gervigreindina: „Hvaða tillögur um aðgerðir ættu flokkar að setja á stefnuskrá fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík ef þeir vilja stuðla að jafnrétti kynja?” Og ekki stóð á svari:
 
Femínísk fjárhagsáætlunargerð

  • Þróa áfram kynjaða starfs- og fjárhagsáætlunargerð
  • Birta upplýsingar um hvernig fjármunir nýtast fólki af öllum kynjum
  • Jafnréttismeta allar stórar fjárfestingar og skipulagsákvarðanir ítarlega


Leikskólar sem jafnréttistæki

  • Stórauka fjárfestingu í leikskólum og stytta biðlista
  • Bæta kjör uppeldis- og umönnunarstétta
  • Tryggja að opnunartími leikskóla þjónusti fjölskyldur


Kynbundinn launamunur

  • Tryggja raunverulegt launagagnsæi hjá Reykjavíkurborg
  • Endurmeta virði kvennastarfa
  • Gera kröfur til verktaka varðandi kynjajafrétti


Öryggi

  • Femínísk borgarskipulagshugsun varðandi lýsingu, gönguleiðir og almenningsrými
  • Öruggar nætursamgöngur
  • Kynjað öryggismat á skipulagi hverfa


Skólar og frístund

  • Jafnréttisfræðsla í öllum skólum
  • Fjölbreyttar aðgerðir til að brjóta upp staðalmyndir í skóla- og frístundastarfi
  • Aðgerðir til að jafna aðgang barna að kynjuðum frístundum, aðstöðu og fjármagni


Heilsa og þjónusta

  • Aukinn geðheilbrigðisstuðningur fyrir ungt fólk
  • Þjónusta borgarinnar taki mið af reynslu brotaþola ofbeldis
  • Kynjasjónarmið séu fléttuð inn í alla velferðarþjónustu


Ofbeldi

  • Unnin verði samræmd borgaráætlun gegn ofbeldi
  • Aukið samstarf við samtök sem veita ráðgjöf og aðstoð fyrir brotaþola og gerendur
  • Fræðsla um eðli, birtingarmyndir og afleiðingar ofbeldis fyrir allt starfsfólk borgarinnar
     

JAFNRÉTTI Í REYKJAVÍK TAKK

 
Mér hefur svo oft verið sagt að geðvonska mín sé stærsta eyðileggingarafl femínísks málstaðar. Þess vegna læt ég geðvonskuna ekki stjórna þessum skrifum. Ég legg mig fram um að vera uppbyggileg, jákvæð og hress þó öllum sé sama um kynjajafnrétti. Ég tek því fram að ég skrifa þetta brosandi og næstum jafn vel til höfð og Guðrún og Malla á myndinni hér að ofan.

Spök og meðfærileg bið ég ykkur mildilega um að ota þessum (eða öðrum) áherslum að frambjóðendum. Það er ekki of seint að smella þessu á dagskrá og fylgja því svo eftir á komandi kjörtímabili. Það myndi gleðja mig ósegjanlega ef eitthvað framboð tæki upp einhverjar af þessum áherslum. En fyrst og fremst yrði það borginni til góðs og fólkinu þar býr og starfar.
 
Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 17. apríl 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: ÚR VÖRN Í SÓKN
Eftir soleytomasdottir 10. apríl 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: ERKITÝPUR OG TEIKNIMYNDIR
Eftir soleytomasdottir 27. mars 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA REYKJAVÍKURBORGAR
ELDRI FÆRSLUR