FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
SÓKNARLEIKUR VIKUNNAR: SPURNINGAR TIL FRAMBOÐA Í REYKJAVÍK
Undanfarið hef ég verið frekar vonlaus. Mér hefur liðið eins og allt snúist alltaf bara um nýjasta bullið í Miðflokknum. Í vikunni tók ég væna dýfu með góðum vinkonum og spjall við fleiri um hvað það væri leiðinlegt að ekkert framboð skyldi hafa sett fram femíníska stefnuskrá. Svo rifjaði ég upp það sem ég hafði skrifað sjálf fyrir réttum tveimur vikum: Það gagnast engum að býsnast bara yfir því sem ekki er gert – við verðum að finna leiðir til að snúa vörn í sókn.
Eftir samtöl í ansi mörgum femínískum hópum ákvað ég því að afla upplýsinga um femínískar áherslur framboðanna. Ég hef nefnilega verið í framboði. Ég veit að fyrir kosningar eru frambjóðendur ekki bara að kynna sínar eigin áherslur, heldur einnig að svara því hvernig þeir hyggist mæta þörfum eða vilja hagsmunahópa, ýmist á fundum eða skriflega. Sjálf man ég t.d. eftir að hafa svarað ítarlegum spurningalistum frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur og Samtökum íslenskra námsmanna erlendis. Það var sjálfsagt og eðlilegt, enda komu þær áherslur hvergi fram í okkar stefnuskrá.
Í vikunni sendi ég póst á öll framboðin í Reykjavík og mun birta svörin í næstu hugleiðingu. Vonandi munu þau auðvelda fólki að gera upp hug sinn, sérstaklega því fólki sem telur mikilvægt að útrýma kynbundnu ofbeldi og launamun, fólki sem vill styrkja börn og ungmenni, tryggja öryggi hinsegin fólks, þróa NPA, þjónustu við flóttafólk og vill gera Reykjavíkurborg að inngildandi samfélagi í heild sinni.
Spurningarnar eru eftirfarandi:
- Hvað hyggst framboðið gera varðandi kynbundið ofbeldi í Reykjavík? Eru einhverjar aðgerðir í kortunum til að auka þjónustu, stuðning og forvarnavinnu?
- Hvernig hyggst framboðið sporna gegn áhrifum mannhvelsins og áhrifavalda sem hvetja ungt fólk til að uppfylla kynhlutverk frá fyrri hluta 20. aldar?
- Eru einhverjar fyrirætlanir af hálfu framboðsins um aukinn stuðning við kynfræðslu, kynjafræði og ofbeldisforvarnir í grunnskólum Reykjavíkur?
- Hvernig ætlar framboðið að takast á við bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks? -Hvernig hyggst framboðið auka öryggi hinsegin fólks í Reykjavík?
- Eru einhverjar aðgerðir fyrirhugaðar til að endurmeta virði kvennastarfa í Reykjavík?
- Hver er stefna framboðsins varðandi áframhaldandi þróun NPA í Reykjavík?
- Mun framboðið beita sér fyrir því að þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd færist aftur til sveitarfélaga? Hvernig sér framboðið fyrir sér að bæta aðbúnað þess hóps að öðru leyti?
- Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að koma í veg fyrir vændi og mansal og hvernig hyggst framboðið styðja fólk til að vinna sig útúr slíkum aðstæðum?
- Hvað hyggst framboðið fyrir varðandi samtvinnaða (intersectional) nálgun í mannréttindamálum? Verður sjónum beint sérstaklega að jaðarsettu fólki, t.d. í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi, launamun og aðgengi að þjónustu? Hvernig?
- Hvað hyggst framboðið fyrir varðandi mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar? Ef framboðið hyggst efla starfsemina, hvernig á að gera það? Ef framboðið hyggst leggja skrifstofuna niður, hvaða verkefni á þá að afleggja? -Hvernig hyggst framboðið þá uppfylla lagaskyldur sveitarfélagsins um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða við alla stefnumótun og áætlanagerð og stuðla að jafnrétti og jafnri meðferð við ráðstöfun fjármagns í þjónustu sveitarfélagsins?
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



