FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
MANNHVELIÐ OG SÍMTAL VIKUNNAR
Meðal þess sem gerðist hjá mér í vikunni var að ég horfði á heimildamynd og fékk símtal um miðja nótt. Hvorugt telst til stórviðburða, en gefur tilefni til hugleiðingar um samhengi og áhrif.
MANNHVELIÐ
Á sunnudaginn horfði ég á heimildamyndina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux þar sem skyggnst er inn í daglegt líf áhrifavalda mannhvelsins. Mér fannst þetta satt að segja frekar ómerkileg mynd um hálfgerð grey sem verða ríkir af að gera upp eigin vanlíðan og áföll með því að upphefja græðgi, einstaklingshyggju og kvenfyrirlitningu. Þetta var löng og leiðinleg heimildarmynd um það sem svo margar konur hafa áður greint, útskýrt og gagnrýnt með miklu beittari hætti.
Ég er orðin svo gömul í þessum bransa að mér fannst þetta besta viðbragðið við myndinni. Hefði viljað hafa vídeóið sem myndskreytingu, en er of gömul til að ráða við það. Setti í staðinn kápur á frábærum bókum eftir konur. En gott og vel. Allt sem vekur fólk til umhugsunar er af hinu góða og ef karlar þurfa að afhjúpa karla til að aðrir karlar nenni að setja sig inn í málin, þá er fínt að þeir geri það.
SÍMTALIÐ
Aðfaranótt þriðjudags vaknaði ég við símhringingu úr óþekktu íslensku númeri. Eftir að hafa reynt að hundsa látlausar hringingar og ansi mörg óaðlaðandi smáskilaboð var ekkert annað í stöðunni en að ræða við kauða. Við hjónin vorum bæði glaðvöknuð og satt að segja svolítið forvitin um það sem hann hefði að segja. Það reyndist hvorki vera fallegt, uppbyggilegt eða verðskuldað.
Ég er orðin svo gömul í þessum bransa að ég varð eiginlega ekkert hrædd. Stutt leit á netinu sýndi að maðurinn hefur bæði beitt konur ofbeldi og ofsóknum. Samt upplifði ég hann bara sem hálfgert grey sem er að glíma við heilmikið mótlæti og ákveður að taka vanlíðan sína út í símtali við mig.
Það er auðvitað óþolandi að ég skuli gera lítið úr ofbeldinu sem það er að hringja heim til fólks um miðjar nætur til að hóta því og úthúða. Ég veit að maðurinn er hættulegur. En það er líklega einhverskonar „survival mekanismi“, enda veit ég að ofbeldi gegn konum er almennt léttvægt fundið í samfélaginu. Bara að einhver karl myndi taka það að sér að afhjúpa svona karla. Þá myndi kannski eitthvað breytast. Tilraunir okkar kvenna hafa allavega ekki virkað.
SAMHENGIÐ
Maðurinn sem hringdi í mig var alveg örugglega dyggur aðdáandi áhrifavalda mannhvelsins. Hann trúir því einlæglega að mótlætið sem hann glímir við sé mér að kenna. Og öðrum femínistum. Og fólki sem vill standa vörð um öryggi og mannréttindi jaðarsetts fólks. Og hann er ekki sá eini.
Í vikunni var frétt um að íslenskir unglingar væru undir talsverðum áhrifum mannhvelsins. Þau upplifa pressu um að strákar eigi að vera ríkir og stæltir og að stelpur séu undirgefnar og setji þarfir stráka ofar sínum eigin. Starfsfólk félagsmiðstöðva upplifir aukna kvenfyrirlitningu meðal unglinga og kynferðisbrot eru að verða enn grófari en áður.
Ekkert af þessu er tilviljun. Kynjamisrétti og kvenfyrirlitning hefur alltaf verið vandamál, en áhrifavaldar mannhvelsins eru birtingarmynd bakslags sem hefur ofangreind áhrif. Þeir eru ekki bara í útlöndum, enda er internetið alþjóðlegt og þeir aldeilis ekki bara útlenskir. Um það hef ég áður skrifað og fullt af öðrum konum líka. Og einhverjir karlar, svo allrar sanngirni sé gætt. En það þarf meira til. Við þurfum öll að sporna við þessu rugli. Það er heilt samfélag í húfi.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


