FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: TRIGGERAR, SLAUFUNARMENNING OG TILKALL
Mjög margar konur á Íslandi eiga áfallasögu. Flestar hafa fundið leiðir til að lifa með áföllunum en þau hafa engu að síður áhrif á öryggistilfinningu kvenna við ólíkar aðstæður. Triggerarnir (afsakið slettuna), sem geta verið ólíkir skapa endurupplifanir, vanlíðan eða óöryggi. Algengt er að vanlíðanin spretti upp á ákveðnum stöðum eða við ákveðnar aðstæður, vegna ákveðinna einstaklinga eða annars sem getur minnt á verknaðinn. Hjá flestum brotaþolum er gerandinn sjálfur stærsti triggerinn. Aðrir gerendur geta líka haft umtalsverð áhrif.
KONURNAR Í RÁÐHÚSINU
Allt ofangreint á líka við um konurnar sem vinna í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ég hef hugsað mikið til þeirra í vikunni. Ég þekki margar þessara kvenna og veit að þær eru kraftmiklar, duglegar og flinkar að vinna við flóknar aðstæður. Þær eru oft í nánum samskiptum við borgarfulltrúa þar sem valdamisræmið er umtalsvert og ég veit að þær láta oft meira yfir sig ganga en eðlilegt er.
Fátt bendir til þess að uppstillingarnefnd Miðflokksins hafi hugsað mikið til kvennanna í Ráðhúsinu í vikunni. Eða kvenna yfir höfuð. Hvað þá einnar tiltekinnar konu sem hefur varið mörgum árum í að vinna úr afleiðingum kynferðislegrar áreitni sem hún varð fyrir. Líðan brotaþola kynbundins ofbeldis var ekki í fyrirrúmi þegar oddviti flokksins í Reykjavík var valinn, maður sem er einna þekktastur fyrir að áreita konur.
SLAUFUNARMENNINGIN
Oddviti Miðflokksins í Reykjavík er til marks um að hundaflautið dugi ekki Miðflokknum lengur. Þeir eru orðnir þreyttir á að „spyrja spurninga“, „opna umræðu“ eða „lýsa áhyggjum“ af einhverju til að magna upp rasisma, transfóbíu og kvenfyrirlitningu. Þeir segja slaufunarmenningunni stríð á hendur með því bjóða fram gamlan karl með gerendafortíð.
Ef allt fer samkvæmt þeirra áætlun mun oddvitinn vappa um ganga ráðhússins næsta kjörtímabil. Áhrif þess á öryggistilfinningu kvennanna sem þar vinna eru augljós. Þá mun hann taka ákvarðanir um líf og líðan allra borgarbúa, þar með talið kvenna, jaðarsetts fólks og brotaþola. Og fram að því verður vart hægt að opna fjölmiðla án þess að triggerandi ásjóna hans birtist fólki.
TILKALL
Þegar oddivitinn var spurður út í fortíð sína í vikunni svaraði hann: Þar sem þessar ásakanir voru tilhæfulausar, þá á ég rétt á því að þetta verði skilið eftir í fortíðinni.
Ég hef nokkrum sinnum skrifað um tilkall (e. entitilement). Meðal annars þegar umræddur oddviti var rekinn fyrir kynferðislega áreitni. Framkoma hans þá var kýrskýrt dæmi um stjórnlaust tilkall þar sem þarfir, vilji og tilfinningar annars fólks skiptu ekki máli. Fjórum árum síðar hefur ekkert breyst. Hann á og má. Hann skilgreinir. Hann á heimtingu á því sem honum sýnist. Hann ræður.
SKILABOÐIN
Oddviti Miðflokksins er kynntur sem reyndur viðskiptamaður og stjórnandi sem borgin þurfi á að halda. Það er samt algert aukaatriði. Eiginlega fyrirsláttur. Fyrst og fremst var hann valinn til að taka slaginn um meinta slaufunarmenningu. Miðflokkurinn vill nefnilega hvorki hvorki að brotaþolar hafi rödd né rétt og hann vill alls ekki láta gerendur axla ábyrgð á hegðun sinni. Miðflokknum finnst sjálfsagt að hið karllæga réttarkerfi skeri úr um sekt og sakleysi og honum finnst óboðlegt að brotaþolar deili við dómarann.
ÁFRAM VEGINN?
Nú ætti ég að koma með eitthvað uppbyggilegt undir lokin. Benda á leiðir til að mæta þessu fáránlega bakslagi. En mér er orða vant. Hugur minn er hjá brotaþolum. Þó staðan sé ömurleg í dag, þá verða vonandi dregnir af þessu lærdómar seinna.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki



