FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA
Skráðu þig í áskrift hér
-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:
HUGLEIÐING VIKUNNAR: ERKITÝPUR OG TEIKNIMYNDIR
Ég nota oft teiknimyndina Purl í námskeiðunum mínum. Hún er stutt og smellin og vekur fólk til umhugsunar um fjölbreytileika og inngildingu.
Myndin fjallar um garnhnykilinn Purl sem hefur störf í fjárfestingarfyrirtækinu BRO Investments, þar sem fyrir eru aðeins hvítir karlar jakkafötum. Purl mætir til leiks með allt annan reynsluheim, annan húmor, önnur áhugamál og annars konar aðferðafræði en áður hefur þekkst í fyrirtækinu, auk þess sem líkami hennar, fas og framkoma er mjög frábrugðið því sem karlarnir hafa átt að venjast.
Þegar ég nota myndina tek ég fram að auðvitað sé hún ýkt, eins og teiknimyndum frá Hollywood sæmir. Engu að síður tengja þátttakendur vel við hana, enda eru sömu úrlausnarefni á langflestum vinnustöðum, þó birtingarmyndirnar séu ekki eins ýktar.
VIÐMIÐ OG FRÁVIK
Myndefni Purl er tilvalið til að útskýra viðmið og frávik. Eins og myndin hér sýnir eru karlarnir algerar erkitýpur, ofsalega líkir, með sömu klippingu og í sömu jakkafötum. Mögulega hafa þeir þurft að hafa eitthvað fyrir því að falla inn í hópinn, kaupa sér réttu jakkafötinn og finna rétta hárskerann, en þeim tókst ágætlega upp.
Fyrir Purl er ómögulegt að ná rétta útlitinu. Í myndinni gerir hún grátbroslegar tilraunir til að aðlagast útliti, hegðun og áherslum sem ekki verður lýst nánar hér, en ég mæli mjög með teiknimyndinni (eða námskeiði hjá mér með umræðum um hana).
Í námskeiðunum hvet ég fólk til að greina viðmiðin á sínum vinnustað og hvernig þau falli að hugmyndafræði inngildingar, þar sem sérstaða hvers og eins á að fá að njóta sín.
HVERSU ÝKT SAMT?
Ég ítreka að ég tek í alvöru fram í námskeiðunum að teiknimyndin sé ýkt, auðvitað séu ofsalega fáir vinnustaðir svona mikið ýktir og bara eiginlega engir sem ég viti um. Enda þyki svona einsleitni ekki töff, hún sé ekki líkleg til árangurs og því almennt ekki eftirsóknarverð.
Svo var mér bent á að sumum virðist bara þykja þetta nokkuð töff. Auðvitað hefði ég getað sagt mér það sjálf, en það er ekki að spyrja að rómantíseringu gamalla gilda hjá Miðflokknum. Þar á bæ hafa nú sex oddvitar verið kynntir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ekki er vitað hvort Pixar Studios hafi komið að hönnun framboðsins eða handritsgerð.
TEIKNIMYND?
Kannski er Miðflokkurinn bara teiknimynd í raunheimum. Ýkt og smellin til að vekja okkur til umhugsunar um mikilvægi fjölbreytileika og inngildingar og minna okkur á hversu glatað það er að ala á einsleitni, karllægni, hörku, græðgi og einstaklingshyggju.
Hversu löng teiknimyndin verður og hversu margar erkitýpur koma við sögu er undir okkur komið. Best væri að sleppa því alveg að kjósa þennan flokk og leyfa hugmyndafræði hans að deyja út. Þá getur samfélagið fengið að þróast með jákvæðum og uppbyggilegum hætti fyrir okkur öll.
Bestu kveðjur,
Sóley
Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki




