FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR KVENNA

Á sunnudaginn, þann 8. mars, er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Ég veit ekki til þess að neinir stórviðburðir hafi verið skipulagðir í tilefni dagsins í ár, en í vikunni hafa hagsmunasamtök vakið athygli á stöðu jafnréttismála í íslensku samfélagi með ýmsum hætti.
 

KYNBUNDIÐ OFBELDI


Samkvæmt 
þolendakönnun ríkislögreglustjóra sem kynnt var í vikunni verða um 16% ungra kvenna (18-25 ára) fyrir kynferðisofbeldi á hverju ári. Það þýðir að 3128 konur urðu fyrir kynferðisofbeldi árið 2025, að jafnaði 8 til 9 á dag.


Vera má að einhverjir gerendur beiti ofbeldi oftar en einu sinni, en jafnvel þó við áætluðum tvo verknaði á hvern þeirra, má ætla að a.mk. 1600 gerendur hafi beitt kynferðisofbeldi árið 2025. Langflestir þeirra ganga frjálsir, enda sjaldgæft að konur kæri verknaðinn og aðeins í undantekningartilfellum sem kærurnar leiða til sakfellingar.

Undanfarna áratugi hafa hagsmuna- og baráttusamtök kvenna valdið vitundarvakningu um kynbundið ofbeldi, sett ofbeldið í samhengi við kynjað valdakerfi samfélagsins og stuðlað að valdeflingu fyrir brotaþola. Þó einhverjar réttarbætur hafi orðið, er augljóst að betur má ef duga skal.
 

KYNBUNDNAR VINNUMARKAÐSHINDRANIR


Í 
Hagkorni BHM kemur fram að atvinnutekjur kvenna voru 80% af atvinnutekjum karla árið 2024. Munurinn skýrist af ýmsum breytum, s.s. menntun, starfsreynslu, vinnutíma og starfsgrein, en þegar leiðrétt hefur verið fyrir þessa þætti mælist munurinn um 10%. Þó þessar skýribreytur séu enn notaðar, er ekki endilega þar með sagt að þær réttlæti launamuninn.

Kynjað verðmætamat og valdakerfi veldur og viðheldur kynbundnum launamun og hefur kynjuð áhrif á skýribreyturnar sem notast er við. Menntun er síður metin til tekna hjá konum en körlum. Hefðbundin kvennastörf eru síður metin að verðleikum en hefðbundin karlastörf og hærra hlutfall kvenna en karla er í hlutastörfum. Ójöfn ábyrgð á ólaunaðri vinnu er bæði orsök og afleiðing alls þessa og allt þetta viðheldur ójafnri ábyrgð á ólaunaðri vinnu kvenna.

Ef okkur er alvara með að leiðrétta kynbundinn launamun verðum við að koma í veg fyrir að innviðir (s.s. skólar, heilbrigðiskerfi og öldrunarstofnanir) reiði sig á ólaunaða vinnu kvenna. Í stað þess að þrengja að þessum innviðum, stytta opnunartíma og setja takmörk á þjónustu verðum við að endurmeta virði kvennastarfa og bæta starfsaðstæður þeirra. Þar er langt í land.
 

FLÆKJUSTIG VALDAKERFISINS


Samverkandi áhrif kynbundins ofbeldis og kynbundinna vinnumarkaðshindrana ýkja svo hvort tveggja. Kynbundið ofbeldi hefur áhrif á möguleika kvenna á vinnumarkaði og kynbundnar vinnumarkaðshindranir geta hindrað að konur komist út úr ofbeldissamböndum.

Við þetta bætist svo fjöldi annarra breyta sem ýkir áhrif hvors tveggja, s.s. stétt, staða, fötlun, uppruni, kynhneigð, kynvitund, tungumálakunnátta, húðlitur og fleira og fleira.
 

ÁRANGUR OG ÁFRAMHALD


Við getum sannarlega fagnað frelsi og réttindum sem hafa áunnist frá því fyrstu baráttudagarnir voru haldnir. Það er miklu betra að vera kona nú en þá. Það er samt ekki nógu gott og blikur á lofti um framtíðina.

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars 2026 þurfum við að gera allt í senn: Gleðjast yfir áunnu frelsi og réttindum, standa keik gegn uppgangi harðlínuhægris sem finnst fátt meira aðlaðandi en réttindaskortur kvenna í upphafi 20. aldar og halda áfram að frelsa allar konur undan kynbundnu ofbeldi og vinnumarkaðshindrunum. Það er okkar að sjá til þess að komandi kynslóðir geti fagnað meira af frelsi og réttindum en við gerum í dag.
 
Bestu kveðjur,
Sóley
 


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 27. febrúar 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: AFLIÐ Í KVENNASAMSTÖÐU
Eftir soleytomasdottir 20. febrúar 2026
 HUGLEIÐING VIKUNNAR: UNG, MIÐALDRA, GÖMUL EN GRÖNN
Eftir soleytomasdottir 18. febrúar 2026
MEIRA UM LEIKSKÓLANA
ELDRI FÆRSLUR