FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: PÓLITÍSK FORGANGSRÖÐUN

Pólitískar áherslur endurspeglast vel í þeirri umgjörð sem meirihlutar skapa sér í borgarstjórn. Nýir meirihlutar aðlaga eiginlega alltaf skipan fagráða að sínum pólitísku áherslum og áhuga. Áherslur í menntamálum hafa breyst með uppskiptingum og sameiningum, þar sem stundum eru sérstök ráð fyrir ólík skólastig og stundum ekki. Frístundamál hafa verið færð til og umhverfismál hafa ýmist verið í sérstökum fagráðum eða látin falla undir aðra málaflokka svo dæmi séu nefnd.
 

ÞRJÚ NÝ FAGRÁÐ


Nýr meirihluti hefur ákveðið að skipta menntamálunum upp með stofnun sérstaks leikskóla- og daggæsluráðs. Það kemur ekki óvart, enda leggja flokkarnir ríka áherslu á breytt fyrirkomulag leikskólamála í Reykjavík. Sömuleiðis ákvað meirihlutinn að skipta íþrótta- og menningarráði í tvennt; í íþrótta- og útilífsráð og menningarráð. Það er líka skiljanlegt hjá hópi sem hefur á að skipa fyrrverandi atvinnuknattspyrnumanni og fyrrverandi leikara. Báðir fá nú að njóta sín í því sem þeir kunna og brenna fyrir. Þessu til viðbótar var ákveðið að setja á laggirnar sérstakt öldungaráð.

Allar þessar breytingar eru settar fram í pólitískum tilgangi. Þær endurspegla áhugasvið og pólitíska forgangsröðun og eru rökstuddar sem slíkar.
 

TVÖ FAGRÁÐ AFLÖGÐ


Á sama tíma lagði meirihlutinn niður stafrænt ráð og færði verkefni þess undir borgarráð. Í haust ætla þau svo að leggja mannréttindaráð niður og færa verkefni þess undir velferðarráð. Ólíkt rökstuðningi fyrir stofnun nýju ráðanna, um að skerpa áherslur og koma mikilvægum verkefnum í gegn, þá vill meirihlutinn meina að niðurlagning mannréttindaráðs muni ekki bitna á málaflokknum. Þetta séu einföld hagræðingaraðgerð, en áfram verði rík áhersla lögð á mannréttindi í Reykjavík.
 

RÖKLEYSA


Nýr meirihluti borgarstjórnar ætlar sumsé að stofna ráð til að auka vægi málaflokka á meðan aflögðu ráðin eiga ekki að hafa nein áhrif á vægi málaflokkanna. Þau vita auðvitað nákvæmlega jafn vel og við hin að án fagráðs fá málaflokkar minni umfjöllun, minna fjármagn og minna vægi yfir höfuð. Þau vilja bara ekki viðurkenna að borgarfulltrúar meirihlutans hafi meiri áhuga á íþróttum, menningu og leikskólum en mannréttindum. Þannig er það nú samt.

 

PÓLITÍSKAR ÁHERSLUR Á TÍMUM BAKSLAGS


Ég dæmi ekki meirihlutann fyrir að stofna þau ráð sem hann ákvað að stofna. Ég er viss um að þau munu leggja sig fram í þeim málaflokkum. Kostnaður við fagráð er ekki það mikill að hann setji borgarsjóð á hliðina og því algerlega forsvaranlegt að láta fyrirkomulag þeirra endurspegla pólitískar áherslur.

Ég mun aftur á móti dæma meirihlutann ef hann lætur verða af því að leggja niður mannréttindaráð. Þeirra eigin hagræðingarrök halda ekki vatni á meðan fagráðum fjölgar, ekki frekar en fullyrðingar um að það bitni ekki á málaflokknum.

Á tímum eins versta mannréttindabakslags í manna minnum er fullkomlega óforsvaranlegt draga úr áherslu á mannréttindamál. Þvert á móti þarf málaflokkurinn á skýrri pólitískri sýn að halda og fagfólki sem getur þróað metnaðarfullar aðgerðir í þágu jafnréttis og öryggis í Reykjavík.

Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 22. maí 2026
 ÖRHUGLEIÐING VIKUNNAR
Eftir soleytomasdottir 15. maí 2026
KOSNINGAR VIKUNNAR: Á MANNRÉTTINDADEGI REYKJAVÍKURBORGAR
Eftir soleytomasdottir 8. maí 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: LANGUR INNGANGUR OG FEMÍNÍSK SVÖR FLOKKANNA
ELDRI FÆRSLUR