FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


MEIRA UM LEIKSKÓLANA

Nokkur upplýsingaóreiða virðist vera til staðar um nýjar gjaldskrár, þá helst af því að meirihlutinn reiknar aldrei skráningardaga inn í mánaðargjald.


Hér eru þrjár myndir sem sýna hvernig breytt greiðslufyrirkomulag kemur niður á ólíkum hópum:

Á myndinni hér að ofan má sjá að allir foreldrar sem geta haft vistunartíma barna í 38 tíma mun greiða minna, jafnvel þó þau þurfi 8 skráningardaga. Hlutfallsleg lækkun er þó miklu meiri hjá sambúðarfólki en einstæðum foreldrum.


Hér fyrir ofan má svo sjá hvernig gjaldskrá fyrir 40 tíma mun breytast. Sambúðarfólk sem getur haft vistunartíma barna í 40 tíma mun greiða minna eða sambærilegt, jafnvel þó þau þurfi 8 skráningardaga. Gjaldskrár einstæðra foreldra (að undanskildum lægsta tekjuhópnum) mun aftur á móti hækka, jafnvel þó þau þyrftu ekki á neinum skráningardögum að halda (sem er eiginlega óhugsandi).

Síðasta myndin sýnir svo að allir hópar munu þurfa að greiða meira fyrir 42,5 tíma (að undanskildum lægsta tekjuhópi án skráningardaga). Gjaldskrárhækkunin er hlutfallslega meiri hjá einstæðum foreldrum en sambúðarfólki.


Upplýsingaóreiðan felst einnig í því að það er ekki hægt að setja aðstöðumun einstæðra foreldra og sambúðarfólks upp í gröf. Við vitum engu að síður að miklu fleiri einstæðir foreldrar munu lenda í dýrari flokkunum af því þau geta síður stytt dvalartíma og fækkað skráningardögum en sambúðarfólk.


Ég endurtek því enn og aftur: Borgarstjórn verður að grípa til aðgerða, enda er ástandið á leikskólunum óviðunandi. En ef borgarstjórn Reykjavíkur hefði metnað fyrir rekstri leikskóla í Reykjavík, þá myndi hún færa hún til fjármagn strax og tryggja sómasamlega mönnun þó vinnuvika leikskólastarfsfólks hafi verið stytt. Í framhaldinu þarf svo að fara í alvöru aðgerðir til að styðja við fagstéttir, bæta aðstæður, umhverfi og allt hitt sem uppá vantar.


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 17. febrúar 2026
BREYTT REYKJAVÍKURMÓDEL, SAMA VANDAMÁL
Eftir soleytomasdottir 13. febrúar 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: TRIGGERAR, SLAUFUNARMENNING OG TILKALL
Eftir soleytomasdottir 6. febrúar 2026
MENNINGARHORN VIKUNNAR: TVENNT GEGGJAÐ
ELDRI FÆRSLUR