FÖSTUDAGSHUGLEIÐINGAR UM FJÖLBREYTILEIKA

Skráðu þig í áskrift hér

-svo máttu endilega deila síðunni með öðru fólki:


HUGLEIÐING VIKUNNAR: FREKJUKARLAKÖST


Þessi hugleiðing er eiginlega framhald af síðustu viku. Þá fjallaði ég um reiðina sem gaus upp þegar tónlistarkonan Sophie Straat bað hvíta karla um að færa sig aftast til að skapa rými fyrir annað fólk í svokölluðum „moshpit“.
 

REIÐIR FREKJUKARLAR


Í vikunni gerðist það svo að samtökunum Áfram Ísland var neitað um að halda pólítískan fund í hátíðarsal Háskóla Íslands. Forsvarsmenn fundarins brugðust ókvæða við, sögðu rektor stunda ritskoðun og leggja stein í götu upplýsingamiðlunar. Hið rétta er að salurinn lýtur sérstökum reglum þar sem m.a. er kveðið á um að ekki megi leigja hann út til einkaaðila eða frjálsra félagasamtaka. Þetta vissu forsvarsmenn mætavel, enda sóttu þeir um salinn í nafni stofnunar innan háskólans, þó fyrirlesarinn hafi þegið boð frá Áfram Ísland og viðburðurinn hafi verið auglýstur í þeirra nafni. 

Þetta er ekki í fyrsta (og líklega ekki síðasta) skipti sem karlar reiðast yfir því að geta ekki sveigt reglur eftir eigin höfði. Rekstraraðilar veitingastaða hafa ítrekað fárast yfir ósveigjanlegum reglum heilbrigðiseftirlitsins, oftar en ekki eftir að hafa gert ráð fyrir að geta hafið rekstur án þess að skilyrði hafi verið uppfyllt. Eigendur áfengisnetverslana hafa reiðst yfir að mega ekki selja áfengi án tilskilinna leyfa og bílaeigendur skammast reglulega yfir sektum fyrir að leggja á gangstéttum. Sigmundur Davíð gekk út úr viðtali þegar hann var spurður út í Wintrismálið og fór í mál við konuna sem deildi hatursorðræðunni sem vall upp úr honum og félögum hans á Klaustri í denn.
 

MYNSTRIÐ


Öll ganga þessi mál út á karla sem eru að springa úr tilkalli. Þó þeir séu allir í blússandi forréttindastöðu, þá upplifa þeir sig undirokaða. Þeir eru ekki vandamál, þeir gera ekkert rangt, heldur upplifa þeir sig beitta órétti fyrir að fá ekki undanþágu frá lögum og reglum. Reiðin beinist ekki að reglunum sjálfum, þær mega vera til staðar og þykja sanngjarnar fyrir almenning og annað fólk, svo lengi sem þær eru ekki íþyngjandi fyrir þá persónulega.
En umræddir karlar kæra sig kollótta um ástæðurnar. Alveg eins og reiðu karlarnir í síðustu hugleiðingu, sem voru of forréttindafirrtir til að spá í hvaða áhrif staða þeirra og hegðun hefði á jaðarsett fólk.

Bara svo það sé sagt, þá væri sannarlega annar bragur á hátíðarsal HÍ ef hann væri til útleigu á almennum markaði, ég er ekki viss um að ég færi oft út að borða ef ég gæti ekki treyst á öryggi og hreinlæti á veitingastöðum, reglur um sölu áfengis eru m.a. settar til að vernda börn og sektir eru m.a. til að koma í veg fyrir að bílar hindri gangandi umferð á gangstéttum. Spurningar um Wintrismálið voru á sínum tíma settar fram til að veita almenningi upplýsingar um mögulega hagsmunaárekstra valdamesta manns landsins og konan sem afhjúpaði hatursorðræðu Miðflokksmanna veitti sömuleiðis mikilvæga innsýn í hugarheim valdakarla.
 

ÞARF NÝTT HUGTAK?


Þessir frekjukarlar eru samfélagslegt vandamál. Öll þessi kæruferli, kvabb, kvartanir og reiði er tímafrek og kostnaðarsöm, fyrir utan leiðindin og ósanngirnina. Ég hef velt því fyrir mér hvort við þurfum nýtt hugtak yfir þá. Eitthvað í anda hugtakanna sem við notum yfir aðrar kynjaðar meinsemdir, s.s. hrútskýringar, menndurtekningar og hannúð. Ég veit það samt ekki. Líklega er bara best að kalla þetta það sem það er: Frekjukarla sem taka frekjukarlaköst.

Bestu kveðjur,
Sóley


Þér er velkomið að deila færslunni með öðru fólki


HUGLEIÐINGAR LIÐINNA VIKNA

Eftir soleytomasdottir 7. ágúst 2026
TILMÆLI VIKUNNAR: HVÍTIR KARLAR FARI AFTAST
Eftir soleytomasdottir 10. júlí 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: KVENNAATHVARF OG KNATTSPYRNA
Eftir soleytomasdottir 26. júní 2026
HUGLEIÐING VIKUNNAR: STJÓRNVALDSÁKVÖRÐUN UM BAKSLAG
ELDRI FÆRSLUR